Óli Tynes límir sig við hausinn á Jackie Chan![]() Óli Tynes, fréttamaður, smurði lími á ennið sitt áður en hann hitti asísku kvikmyndastjörnuna Jackie Chan nú um helgina. |
Húsleit í heitum potti athafnamanns![]() HÚSLEIT var gerð í heitum potti í eigu athafnamannsins Ólafs Ólafssonar í gær. Potturinn er 60 fermetrar að stærð og stendur við sumarhús Ólafs í Miðnesi á Snæfellsnesi. Upphaflega var ætlunin að leita í pottinum á sama tíma og leit var gerð í sumarhúsinu sjálfu í gær en vegna umfangs hans og stærðar þurfti lögregla að fá sérstaka heimild til að leita í pottinum enda flokkast hann sem sérstakt mannvirki. Heimild fékkst með dómsúrskurði í dag og var þá leit gerð í pottinum. Að sögn lögreglu gekk leitin vel þegar þjónn Ólafs var búinn að spúla umtalsvert magn af gubbi úr pottinum. |
Í hnotskurn: Össur neitar að vera á mynd með dóttur sinni![]() ÞEGAR Össur Skarphéðinsson snéri aftur til heimils síns í gær eftir setu á leiðtogafundi NATO í Strassborg neitaði hann dóttur sinni umsvifalaust um mynd af sér með henni. Daginn áður hafði utanríkisráðherra neitað Gordon Brown, forsætisráðherranum breska, um mynd af þeim saman. „Gleymdu því. Ekki séns í þessu lífi,“ sagði Össur við Brown og endurtók sömu orð við dóttur sína í gær. Þegar tengdafaðir hans kom í heimsókn seinna um kvöldið tók Össur á móti honum í dyragættinni með orðunum: „Blessaður. Ef þú ert kominn hingað til að fá mynd af þér með mér þá geturðu gleymt því. Ekki séns í þessu lífi.“ |
Bogi Ágústsson gefur út draugasögu![]() Bogi Ágústsson, sjónvarpsþulur og fréttamaður, hefur gefið út nýja og skemmtilega draugasögu fyrir börn á aldrinum 8 - 12 ára. Bókin nefnist „Drauga-Gil“ og er 43 blaðsíður og myndskreytt af Brian Pilkington. „Drauga-Gil“ er framhald af fyrri sögum Boga um Hlíðastrákinn Sigga og innflytjandann Petru og hættuleg ævintýri þeirra í Vík. Af fyrri bókum Boga má til dæmis nefna „Drauga-Vinur“, „Drauga-Vélbyssan“ og „Drauga-Sumar“. |
Sjálfstætt fólk í kvöld: Catalina NcogoÍ Sjálfstæðu fólki í kvöld hittir Jón Ársæll Catalinu Ncoco, sem rekur vændisþjónustu í Reykjavík, og kynnist daglegu lífi hennar. Catalina segir frá því hvernig er að vera innflytjandi og sjálfstæður atvinnurekandi á Íslandi og fjallar um þá ósanngjörnu gagnrýni sem vændishús hennar á Hverfisgötu hefur mátt þola. Þá fara þau saman í ræktina og Jón Ársæll hlær dátt að venju. Þá er Jón Ársæll handrukkaður undir lok þáttarins. |
Útvarpskennarinn hefur göngu sína á ný![]() Útvarpskennarinn heldur áfram þaðan sem frá var horfið mánudaginn 23. mars næstkomandi, klukkan 21:30 á Rás 2. Útvarpskennarinn spannar sem fyrr ótal áhugaverð svið í kennslu sinni, s.s. landafræði, málfræði og reikning. Útvarpskennarinn tekur jafnframt á móti gestum og svarar símtölum lærdómsfúsra, og kennir þeim kristinfræði og listasögu. Allt þetta og fleira kennir útvarpskennarinn með sinni djúpu og þýðu rödd næstkomandi mánudag. |
Í sjónvarpinu í kvöld: Ævintýri Dýra-Garðars![]() Bandaríska ævintýramyndin Dýra-Garðar 2: Ævintýri við strandlengjuna (e. The adventures of Zoo-Zack 2) er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld. Myndin er framhald af fyrstu kvikmyndinni um Dýra-Garðar. Ævintýramaðurinn fífldjarfi, Dýra-Garðar, hefur nú verið látinn laus úr fangelsi og er staddur á Nýja-Sjálandi. Þar berst hann við herskáan flokk frumbyggja með dyggri aðstoð dýraríkisins. Dýra-Garðar dáleiðir hin ýmsu dýr til fylgis við sig, líkt og í fyrstu myndinni. Hann dregur glæpakvendi á tálar og reynir að ná sambandi við son sinn. Myndin er bönnuð börnum yngri en 16 ára vegna niðrandi orðbragðs. |
Í sjónvarpinu: Idol stjörnuleitÁ meðan þú horfir á Idol stjörnuleit annað kvöld munt þú loksins átta þig á því hversu ómerkilegt líf þitt er. Þú grætur um stund en tekur þig saman í lok þáttarins og tekur loksins ákvörðun um að flytja til Danmerkur og hefja nýtt líf. |
Ljósmyndari mismælir sig: „Segið svarthol“Atvinnuljósmyndari á höfuðborgarsvæðinu komst í hann krappan er hann myndaði þátttakendur í keppninni Ungfrú Reykjavík um helgina og sagði þeim að segja „svarthol“ á mikilvægasta augnablikinu. |
Tilkynning: Lífrænu kanil-verjurnar komnar í Yggdrasil![]() Nýju, lífrænu verjurnar frá Bio-Dick eru komnar í Yggdrasil. Þær eru sem fyrr fáanlegar í ýmsum bragðtegundum, nú einnig með kanil-bragði. - Yggdrasil |
Í hnotskurn: Rithöfundur skrifar bók sem hann les jafnharðan uppháttÍslenskur rithöfundur í Reykjavík vinnur um þessar mundir að þriðja skáldverki sínu, og les það jafnharðan upphátt. Hann vinnur bókina að mestu leyti heima hjá sér. Stundum situr hann þó við skriftir á kaffihúsum borgarinnar og brýtur regluna, þ.e. les bókina í hljóði. |
Útvarpið í fyrramálið: Morgunþátturinn ZúúberÍ morgunþættinum Zúúber verður farið með ýtarlegum hætti yfir orsakir fjármálakreppunar í Bandaríkjunum og velta Svali, Gassi og Sigga fyrir sér hvort inngrip ríkisvaldsins sé réttlætanlegt til að auka eftirspurn þjóðfélagsins. Þá fá þau til sín Jón Steinsson, lektor í hagfræði við Columbia-háskóla, til að ræða um björgunarpakkann svokallaða upp á 800 milljarða dollara sem samþykktur var í Bandaríkjunum á dögunum. Í síðasta þætti lýsti Gassi yfir efasemdum sínum um hverskonar inngrip ríkisvaldsins og lagði þess í stað til að bandarísk yfirvöld lækkuðu skatta til að örva efnahagslífið að nýju. |