Fimmtudagur, 23. Apríl 2009 00:44    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Hvölum algjörlega nóg boðið
Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til himins og steypa sér í freyðandi hafið. Ósköpin hófust í gærmorgun þegar Hvalur 7 vaggaði á lygnum sæ skammt úti fyrir Tálknafirði. Réðust þá skyndilega að skipinu þrjár tröllauknar skepnur og gleyptu skipið. Síðan þá hafa að minnsta kosti fjórtán skip horfið í gin hvalanna.

„Séu menn eða dýr beitt órétti til lengdar er það náttúrlega bara tímaspursmál hvenær mennirnir eða dýrin taka málin í sínar hendur og rísa gegn mótlætinu,“ segir Susan Lavander, talsmaður alþjóðlegu náttúruverndarsamtakanna Greenpeace. „Það sem við erum að sjá í tilviki hvalanna er ósköp skýrt dæmi um þetta. Hvalir eru mjög mikilvæg og falleg dýr, sem enginn ætti að veiða. Með þessu setja hvalirnir ákveðið hnattrænt fordæmi, sem vonandi verður öðrum þjóðum fordæmi í framtíðinni.“

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir ástandið slæmt, en þó sé öll von ekki úti enn. „Hvalirnir, sem allajafna eru friðsamar skepnur, hafa að þessu sinni ákveðið að mæta hörðu með hörðu. Þetta setur vissulega strik í reikninginn, einkum svona rétt fyrir kosningar. Ég er þó vongóður um að úr þessu skýrist, enda þarf ég að afgreiða allnokkrar pantanir af hval til Japans um mánaðarmótin. Við sjáum hvað setur.“

Íslendingar hófu á síðasta ári hvalveiðar að nýju, alþjóðasamfélaginu til mikillar gremju. Hvalveiðar höfðu verið stundaðar á Íslandi í aldanna rás, en náðu hámarki á 19. öld og fyrri hlutu hinnar tuttugust, einkum vegna mikillar eftirspurnar á lýsi, sem unnið er úr hvalspiki. Alþjóðahvalveiðiráðið lagði blátt bann við öllum hvalveiðum árið 1986, en sú ákvörðun hefur allt tíð verið mjög umdeild, og ýmsar þjóðir hunsað bannið. Ríkisstjórnin fundaði í morgun og sendi í kjölfarið út tilkynningu um að íslensk skip skyldu halda sig til hafna meðan úr deilunni greiðist.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623