Fimmtudagur, 05. Mars 2009 22:59    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Singstar: Sigur Rós væntanlegur á markað

Hið heimskunna dreifingar- og framreiðslufyrirtæki, Sony Computer Entertainment, hefur tilkynnt að um næstu mánaðamót muni fyrirtækið setja á markað nýja útgáfu af Singstar-tölvuleiknum sívinsæla. Nýjasta innleggið er tileinkað íslensku hljómsveitinni Sigur Rós og nefnist einfaldlega Singstar: Sigur Ros. Útgáfa Singstar: Sigur Ros er framhald af nýrri þema-útgáfu af Singstar, en fyrstu innleggin í hljómsveita-seríunni, Singstar: Aerosmith og Singstar: ABBA, hafa rokselst.


Steven Patterson, framkvæmdastjóri London Studio, sem hanna Singstar-leikina, kveðst afar spenntur. Hann segist hafa miklar væntingar í tengslum við útgáfu Singstar: Sigur Ros. „Fyrst ætluðum við reyndar að fá Genesis í samstarf og gefa út Singstar: Genesis, en það strandaði vegna einhverra lagaflækja, svo að töluðum við strákana í Sigur Rós, sem voru valkostur númer tvö, og þeir tóku hreint afskaplega vel í þetta.“


Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, segir þetta frábært tækifæri til að ná til breiðari hóps af tónlistaráhugamönnum. „Fyrst og fremst er náttúrlega bara frábært að vita að fólk sé að syngja lögin okkar,“ sagði Georg. „En fólk hefur reyndar mikið verið að syngja með okkur á tónleikum í gegnum tíðina.“ 

 

Fjölmargir aðdáendur hljómsveitarinnar um allan heim ættu að gleðjast því að geta nú loks sungið með lögum eins og „Heysátan“, „Starálfur“ og „Ónefnt 6“.

 

Söngfuglar víðsvegar um heiminn hafa undanfarin ár sameinast um ýmsar útgáfur Singstar-tölvuleiksins. Í leiknum keppa tveir eða fleiri í því að syngja skemmtileg og vinsæl lög og sá vinnur sem uppsker flest stig. Auk hinna áðurnefndu Singstar: Aerosmith og Singstar: ABBA, hafa til að mynda komið út titlar á borð við Singstar: 80's, Singstar: Rock, Singstar: Rock Ballads, Singstar: Hits, Singstar: Pop og Singstar: Disney. Útgáfa Singstar: Sigur Ros ætti því svo sannarlega að vera til þess fallin að auka hróður hljómsveitarinnar, enda um heimsþekkt vörumerki að ræða, sem iðulega selst í bílförmum.


Útgáfa Singstar: Sigur Ros hefur vitaskuld vakið talsverða athygli innan íslensku landsteinanna. Sá orðrómur hefur kvisast út að Sena hafi í hyggju að gefa út Singstar: Veðurguðirnir fyrir næstu jól. Sá diskur mun til að mynda innihalda lögin kunnu, „Bahama“, „Drífa“ og „Vinurinn“, en að auki eitt splunkunýtt lag úr smiðju Ingós, sem nefnist „Hanskinn“. Þá hafa einnig heyrst raddir um mögulegan Singstar: Gylfi Ægisson en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum.

 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623