Mánudagur, 30. Mars 2009 18:10    Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Ég á það til að myndast alveg ógeðslega vel
Ef það er eitthvað eitt sem ég hef lært á 33 ára langri ævi minni, þá er það að hlusta á annað fólk meðan það talar. Það er hreint óþolandi þegar einhver er að tala við einhvern annan, sem hlustar ekki einu sinni! Það er algjör vanvirðing. Við manneskjur greinum okkur frá dýrunum aðallega vegna þess að við kunnum að tala og hugsa. Er það ekki algjör sóun ef við tölum án þess að hitt fólkið hlusti á okkur? Ég reyni alltaf að hlusta vel á þá sem tala við mig - og stundum verð ég þess var að fólk kvartar yfir því hversu illa það líti alltaf út á ljósmyndum. Þetta finnst mér dáldið fyndið, því að ég á það nefnilega til að myndast alveg ógeðslega vel.

Ég er alltaf að sjá ferlegar myndir af vinum mínum og fjölskyldu, þar sem allir eru með rauð augu eða ljóta grettu á munninum, sem gerir viðkomandi ófrýnilega og fráhrindandi. Á sumum ljósmyndum af fólki sem ég þekki eru vinir mínir kannski í miðju orði og með hálflokuð augu, eða með glas við munninn sem skyggir á nefið, eða að hlæja þannig að andlitið afmyndast allt og verður ljótt. Stundum eru þeir að dansa, löðrandi í svita sem glampar á andlitinu, þannig að það sést hvað þeir eru hvítir.

Alveg frá því að ég man eftir mér hefur þetta ekki verið þannig um mig. Þið megið reyndar ekki misskilja mig. Það er til alveg hellingur af bara svona sæmilegum ljósmyndum af mér, sem ég myndi kannski ekkert setja á ökuskírteinið mitt. Eða í vegabréfið! Nei, alls ekki. Sumar myndirnar af mér er bara „svona fínar“. Það sem ég vildi sagt hafa er hins vegar það, að stundum þá myndast ég alveg ógeðslega vel.

Það getur gerst næstum því hvar sem er: Á ströndinni, í gimminu, á kaffihúsi, eða bara heima í stofu. Einhver kemur og tekur kannski svona sjö ljósmyndir af mér, og ein þeirra er alveg fáránlega góð. Og um það eru allir sammála. Þess vegna finnst mér alltaf svo fyndið þegar vinir mínir eru að kvarta yfir því hvað þeir myndist illa. Ég brosi bara, og hlusta - það geri ég alltaf - og síðan þegar vinur minn er búinn að tala, þá segi ég: „Ég á það til að myndast alveg ógeðslega vel.“

Og ef vinur minn trúir mér ekki, þá segi ég bara: „Sæktu bara myndavélina ef þú trúir mér ekki!“

Lengra verður þetta nú ekki í dag. En ég hlakka mikið til að skrifa næstu hugleiðingu mína, sem mun fjalla um það hvað ég veikist sjaldan.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623