Fimmtudagur, 04. Júní 2009 00:25    Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Ég gleymi orðum en man rímið
EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og hverju svararðu til, ef einhver spyr: „Er til salt?“ Aftur veit ég ekki með þig, en ég mundi hugsa: Allt. Síðan myndi ég ná í malt.

Sjáðu til, ég á við ákveðið vandamál að stríða: Ég gleymi orðum, en man rímið.

Fólk etur við margvísleg vandamál í daglegu amstri, ég geri mér grein fyrir því. Mitt vandamál er hins vegar kynlegum toga og vandmeðfarið í hversdagslífinu, enda setur það spor sitt á flestar, ef ekki allar, athafnir mínar. Einu sinni var ég á leið út í búð og Ásrún, eiginkona mín, bað mig um að kaupa brauð, smjör, sykur, salat og kanil. Síðan þegar ég var kominn í búðina mundi ég náttúrlega ekkert nema orð eins og dauð, fjör, kvikur ...Hvað salatið og kanilinn snerti mundi ég náttúrlega ekki neitt, enda rímar ekki neitt við þessi orð. Allavega engin orð sem ég kann.

Öðru sinni var ég spurður hvort ég hændist að börnum. Ég velti spurningunni fyrir mér drjúga stund. Gegnum huga minn liðu þágufallsmyndir ýmissa orða: „görnum“, „stjörnum“, „kjörnum“, „björnum“, „svörnum“, „gjörnum“, „örnum“ - en ég gat ómögulega munað hvað spurningin fól í sér. Að lokum fór svo að ég leiddi spurninguna hjá mér og beindi umræðunni inn á aðrar brautir.

Þetta vandamál markar flest svið lífs míns. Ég á í erfiðleikum með að halda þræði við lestur bóka og í ratleik. Eiginkona mín, Ásrún, á það til að gantast með þetta vandamál mitt, en ég hef engan húmor fyrir því. Og hún skilur það þegar ég tryllist stundum. Satt best að segja á ég ekki auðvelt með að taka þátt í nokkrum samræðum. Ég hef þó aldrei látið þennan minnisbrest hindra mig á framabrautinni. Í menntaskóla var ég formaður árshátíðarnefndarinnar á fjórða ári og í dag er ég upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Eyjan.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/747246c5e6b81693f0869e346b390605.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/747246c5e6b81693f0869e346b390605.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623