Þriðjudagur, 26. Maí 2009 23:04    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Eiður Smári gerir varamannabekkinn „kósý“ fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar
EIÐUR Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, situr ekki auðum höndum í undirbúningi Barcelona-liðsins fyrir úrslitaleik meistaradeildarinnar gegn Manchester United. Hann hefur undanfarna daga unnið hörðum höndum við að gera varamannabekkinn á Ólympíuleikvanginum í Róm sem allra huggulegastan fyrir leikinn.

„Fólk kannski áttar sig ekki alltaf á því að það er ekki síst vinnan að tjaldabaki sem máli skiptir í þessu sporti og einkum fyrir mikilvægan leik eins og þennan. Það er mikilvægt að stemmningin innan liðsins sé góð og jafnframt að þegar þreyttum leikmönnum er skipt út af, geti þeir gengið beint í hlýlegt og þægilegt umhverfi á varamannabekknum og þar taki brosandi andlit á móti þeim. Tilgangurinn helgar meðalið og einhver þarf að taka þetta hlutverk - þetta mikilvæga hlutverk - að sér. Og auðvitað er ég boðinn og búinn til þess, enda með reynslumeiri leikmönnum liðisins. Strákarnir í liðinu kalla mig „pabba bekk“ eða „papa banco“ upp á spænskuna,“ segir Eiður hlæjandi.

Eiður tekur hlutverk sitt sem umsjónarmaður varamannabekksins afar alvarlega og undirbýr hvern leik af kostgæfni. Fyrir stórleikinn gegn Manchester hefur Eiður fylgt skilvirkri áætlun sem hefst löngu fyrir leikinn. Á æfingum klappar „pabbi bekkur“ mönnum reglulega á bakið og passar að öllum líði vel. Þá eldar hann fyrir strákana á hverjum þriðjudegi. Mikilvægasti undirbúningurinn lýtur þó að „sköpun hins rétta andrúmslofts“ á varamannabekknum. Eiður kemur til leiks með kerti og púða, myndir af fjölskyldumeðlimum leikmanna, pottaplöntur sem hafa róandi áhrif, ýmis krem og smyrsl, reykelsi og litlar gulrætur í poka. Þá reynir hann að koma með eitthvað sérstakt fyrir hvern og einn - til að mynda tekur Eiður alltaf með hlýja peysu fyrir Rafael Marquez, því að hann er frá Mexíkó og verður þess vegna oft svo kalt.

„Ég reyni raunverulega bara að hafa þetta eins „kósý“ og ég get,“ segir Eiður og brosir. „Ég spila alltaf Mezzoforte skömmu fyrir leik, svona til að koma mönnum í gírinn. Garden Party, Four Leaves, eitthvað þannig ... Síðan bregð ég alltaf á tónlist Lay Low úr leikritinu Ökutímar í búningsklefanum fáeinum andartökum áður en gengið er til leiks, hún hefur mjög slakandi áhrif á strákana. Svo má náttúrlega ekki gleyma því að lýsingin á varamannabekknum er afskaplega mikilvæg. Rétt lýsing getur hreinlega unnið leiki. Ég finn til að mynda oft hvernig ég er alls ekki tilbúinn í leikinn þegar ég kem inn á eftir 88 mínútur og lýsingin hefur verið of sterk.“

„Ég legg mig alltaf allan fram og vil spila sem mest en mér líður samt vel þegar ég sé númerið mitt koma upp í þau fáu skipti sem mér er skipt út af undir lok leiks. Þá er svo huggulegt að tylla sér á bekkinn, fá góða peysu, teppi og bók frá Eiði og stundum, þegar ég hef staðið mig vel, laumar hann að mér litlum kanilsnúð sem ég narta í þegar Guardiola þjálfari horfir ekki,“ segir Leo Messi, stjörnuleikmaður Barcelona liðsins.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623