Mánudagur, 25. Maí 2009 00:30    Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Lebron James hittir þriggja stiga skoti með barni
EINKENNILEGT atvik átti sér stað í annarri viðureign Orlando Magic og Cleveland Cavaliers í undanúrslitum NBA-deildarinnar í nótt þegar ungabarni var skotið fyrir utan þriggja stiga línuna og beint ofan í körfuna. Trey Johnson, leikmaður Cleveland, tók innkast í þriðja leikhluta, fékk barnið í hendur frá dómaranum og gaf það um leið á helstu stjörnu liðsins, Lebron James, sem skaut barninu með hnitmiðuðu þriggja stiga skoti, beint ofan í körfuna. Cleveland komst þá í fyrsta skipti yfir í leiknum, 68:70.

Ekki er vitað með hvaða hætti barnið barst inn á völlinn. Boltinn þeyttist út af vellinum í þriðja leikhluta og svo virðist sem áhorfandi við hliðarlínuna hafi þóst ætla færa dómara leiksins boltann en fært honum barn sitt í hendur í staðinn. „Ég fékk, að ég hélt, boltann í hendur frá áhorfanda og áferð barnsins svipaði mjög til körfubolta og ég taldi því öruggt að ég héldi á slíkum knetti. Barnið var líka ekki ósvipað körfubolta að lit. Ég rétti því Johnson boltann þegar leikur átti að hefjast að nýju. Það var ekki fyrr en ég sá Lebron James í skotstöðu fyrir utan þriggja stiga línuna að ég áttaði mig á því að barn hafði verið sent inn á völlinn en þá var það um seinan,“ sagði Howard Francesco, dómari leiksins.

Barnið sakaði ekki við skotið og var snarlega skipt út fyrir nýjan bolta. Cleveland fór að lokum með eins stigs sigur af hólmi og deila menn nú um hvort stigin þrjú sem fengust þegar ungabarnið hvein í körfunetinu eigi að telja með í heildarstigum Cleveland-liðsins.

„Barn eða bolti - það skiptir ekki öllu. Ég veit bara að Lebron skaut einhverju sem leit út fyrir að vera bolti ofan í körfuna og við fengum þrjú stig og unnum leikinn. Annað skiptir mig engu máli,“ sagði Mike Brown, þjálfari Cleveland.

Ekki er vitað til þess að barni hafi áður verið skotið ofan í körfu í stað bolta í leik í NBA-deildinni. Heimildir herma þó að möppu þjálfara hafi eitt sinn verið skotið ofan í körfuna í leik fyrir misskilning.
 

Álit

Innlent

News image

Alþingi samþykkir 15% álagningu á Ilmi Kristjánsdóttur

Á TÓLFTA tímanum í nótt samþykkti Alþingi nýtt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að álagning á Ilmi Kristjánsdóttur, leikkonu, aukist um rúm 15%. Hart var deilt um frumvarpið og...

News image

Vofa Bobby Fischer eyðileggur skákkennslu í Hagaskóla

SKÁKSNILLINGURINN Bobby Fischer, sem lést í byrjun árs 2008, gengur nú aftur í Hagaskóla í Reykjavík og hefur að undanförnu ásótt skáksveit skólans og eyðilagt flestar æfingar liðsins undanfarnar vikur....

News image

Steingrímur Njálsson hlýtur fálkaorðuna fyrir misskilning

„Ég var að stíga út úr SAAB-inum mínum á Bessastöðum, þegar hringt var í mig, og mér tilkynnt um að þetta hefði verið mistök. Ég átti aldrei að fá fálkaorðuna....

News image

Hvölum algjörlega nóg boðið

Íslenskir hvalir hafa snúið vörn í sókn og fara nú hamförum úti fyrir Íslandsströndum, þar sem þeir gleypa hvert skipið á fætur öðru, milli þess sem þeir öskra hamstola til...

Erlent

News image

Michael Jordan sést á tveimur stöðum í einu

SÁ UNDRAVERÐI atburður átti sér stað í gær að körfuboltagoðsögnin Michael Jordan sást á tveimur stöðum í einu vestanhafs. Ljósmyndir náðust af Jordan að taka við heiðursverðlaunum fyrir úrslitaleik í...

News image

Ný rannsókn leiðir ekkert í ljós

NIÐURSTÖÐUR hafa nú fengist úr viðamikilli rannsókn á mannlegu atferli vegum tíu stærstu háskóla heims. Rannsóknin stóð yfir í þrjú ár og alls tóku 4.000 manns þátt í henni. Niðurstöður...

News image

Obama sættist við vélmenni

BARACK Obama, forseti Bandaríkjanna, sættist á dögunum við vélmenni sem hann hefur átt í deilum við frá barnæsku. Sáttafundurinn fór fram í almenningsgarði í Washington og stóð yfir í rúma...

News image

Ungfrú Alheimi nauðgað í geimferð

HINNI 23 ára gömlu Paulu Estevez frá Venezuela, sem kjörin var Ungfrú Alheimur í október á síðasta ári, var nauðgað um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni í fyrradag. Að svo stöddu...

Kosningar 2009

News image

Nýr frambjóðandi Framsóknarflokksins vekur athygli

VALUR Hilmisson, blikksmiður og Norðurlandameistari í Motocrossi, skipar 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt skoðanakönnunum hefur fylgi flokksins í kjördæminu aukist umtalsvert síðustu vikur og telja reyndir stjórnmálafræðingar...

Innsendar greinar

News image

Ég gleymi orðum en man rímið

EF EINHVER biður þig að stíga um borð í skipið, hvað hugsarðu? Ég veit ekki með þig, en ég hugsa alltaf bara hluti eins og: Gripið. Eða: Klipið. - Og...

News image

Guð blessi sykurskattinn!

Auðvitað finnst öllum ofboðslega gott að borða nammi. Til þess er nú leikurinn gerður, samanber upphrópunina góðu, Nammi namm! Fólk á sér sína eftirlætis-nammitegund, til dæmis Fruit Drops, Brak, Trítla,...

News image

Bíddu, hefur Carl Lewis skilað einhverjum verðlaunum? Nei, hélt ekki!

VANÞEKKING og skilningsleysi eru meðal verstu lasta sem mannfólk ber á herðum sínum. Allt frá áflogum á öldurhúsi til stórbrotinna styrjalda um víða veröld má rekja til skorts á skilningi...

News image

Ég þekki ekki neinn

KÆRLEIKSRÍK og traust vinátta er grunnurinn að góðu sambandi á milli tveggja einstaklinga. Samhugur og rík ábyrgðarkennd gagnvart öðrum eru jafnframt nauðsynleg skilyrði árangursvænnar samvinnu í leik og starfi. Um...

Mest skoðað

Visir.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/c78b02d7eef97f35454d8167ad90dd7a.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623

Mbl.is


Warning: file_put_contents(/u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc) [function.file-put-contents]: failed to open stream: Permission denied in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 7219

Warning: /u01/usrhome/dindill/public_html/cache/7d038c5d700c835c78a4fc797e0648fc.spc is not writeable in /u01/usrhome/dindill/public_html/libraries/simplepie/simplepie.php on line 1623